þriðjudagur, september 18, 2007

::: þá er komið að því :::

Nú er víst betra að standa við stóru orðin og reyna að greina í nokkuð stuttu máli frá því sem á daga mína hefur drifið í sumar.. og jafnvel eitthvað um það sem framundan er.
Er nú frá býsna mörgu að segja, þó að flest af þessu komi ykkur ekki rassgat við!!.. Afsakið, þulur missti þarna stjórn á sér um stundarsakir..
Sumarfríið hófst með utanlandsferð, n.t.t. til baunverjalands þar sem nýjasta afurð Sniglabandsins var að mestu hljóðrituð.. þó enn standi yfir nokkrar ritanir, en þó eru a.m.k. 2 lög alveg tilbúin og flest önnur af þeim 11 er prýða munu geislinginn ansi langt á veg komin. Auðvitað eru þessi 2 tilbúnu hin geysivinsælu "Selfoss er" og ódauðlega "Britney". Hið síðarnefnda fór einmitt í spilun í síðustu viku; 11.sept. og er bókstaflega að gera allt vitlaust.. Nóg um það..
Til stóð að ég færi beint frá DK til DE en vegna úrhellis var útihátíð sem Stuðmenn áttu að spila á aflýst, þannig að ég komst heim til finnunnar minnar, sem var mjög gott.

Núh..

Eitthvað var nú farið í ferðalög, m.a. á Landsmót bifhjólamanna sem haldið var lengst norður í rassgati og var það mjög gaman..
Við skötuhjú fórum svo í nokkurra daga bíltúr með tjald í skottinu.. það var líka gaman.

Allt mögulegt var nú brallað, þó svo að minna hafi orðið úr fríinu en til stóð, aðallega vegna þess að ég gleymdi að segja nei við nokkrum giggum, þ.á.m. Eldur í Húnaþingi/Unglist/Sniglabandið/Ball/útvarpsþáttur.is sem var alveg æðislega skemmtilegt allt saman. Ekki síst hrossið hans Munda og allt það tilbehör og stell (lesist steddl).

Sjálfsagt er ég að gleyma einhverjum hellingi... t.d. að ég "lenti í því" að spila einn þátt með köllunum sem var gaman að FLESTU leiti og hefði verið fullkomlega frábært ef ekki væri fyrir hana Sigrúnu Djé-Pjé áður vinkonu mína, sem eyðilagði líf mitt um stundar sakir... En nú er allt batnað og allir í stuði.

Þeir eru svo miklir snillingingar sniglbendingarnir: Er þeir voru í þann mund að fara í svið á Hótel Örk núna rétt um daginn, tjá þeir mér að ég og Guðf ættum bókað til Parísar 12. september.. Þeir sumsé keyptu undir okkur flug og hótel í 3 nætur og redduðu fríi í vinnunni minni og alles!! Hvað getur maður sagt??
Þessi ferð var æðisleg og býsna kærkomin.. Allir sem ekki hafa farið til Parísar... drífa siiiig!!..

Þetta er nú það helsta sem ég þurfti að segja ykkur lufsurnar mínar.. ég veit að þetta er heldur slitrótt og leiðinleg upptalning á fánýtum hlutum.. ég satt að segja var að vonast til þess að andinn kæmi yfir mig og einhverjar skemmtilegar sögur birtust mér er ég hæfi skriftir, en því miður... ekki núna a.m.k.

Afsakið mig... ef mig skildi kalla..

Passið ykkur á myrkrinu.

s.



p.s.

Ég hjólaði u.þ.b. 4000 mílur í sumar, sem jafngildir 6400 kílómetrum, sem þykir víst nokkuð mikið, sem var líka mjög gaman... og er..

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að heyra frá þér kallinn minn.
Geðveikt að fá 3ja nátta Parísarferð frá dúddunum, ég hlýt að fá líka frá þeim, fyrir hestamennsku, vöflur, vöfflur, inn-og útblástur ásamt tambúrínuleigu???

Kannski kemur þessu áleiðis fyrir mig góði?

19 september, 2007 10:50  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Sillinn minn. Gaman að "sjá" frá þér.... texta, altså blogg.
Ja hérna hér.
Þá býst ég við einhverju frá þeim dúddunum líka fyrir að hafa uppi á ykkur í PUK, ráðleggingar með stuttar verslunarferðir, akstur í langri verslunarferð (svona miðað við hvað var verslað fyrir lítið :-)),leitun að hraðbanka, tæknilegur stílisti (ásamt Skúla Gautasyni) Þorgils Björgvinssonar, akstur til baka úr verslunarferðinni og áheyrn upptakna á þeim fyrsta degi sem upptökur stóðu yfir .

Já, ég væri til í að skreppa með Munda eitthvað til útlanda hehe.

19 september, 2007 11:44  
Blogger Sigrún said...

Hvað um mig!!! mig langar til Grænlands.
Já og gaman að heyra frá HONUM Silla

19 september, 2007 18:30  
Blogger Zillwester 2k said...

híhíhíhí.. þið eruð nú meiru stuðboltarnir..
Sei sei.

20 september, 2007 12:02  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ ´skan. Aldeilis gaman að sjá frá þér línur.
Saknaði ykkar um síðustu helgi og reyndar alltaf.
Ég á ekkert inni hjá dúddunum þannig ég verð líklega bara heima. Hihi

20 september, 2007 19:43  
Anonymous Nafnlaus said...

Dúdderídúdd

21 september, 2007 09:27  
Blogger Sigrún said...

sem minnir mig á þetta:
á morgun hó og ask og hí og hæ,
og ha og uss og pú og kanski og seisei...

21 september, 2007 22:21  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvað er nú þetta Sigrún?

22 september, 2007 22:02  
Blogger Sigrún said...

þetta endar svona:
korriró og amen bí og bæ
bösli hnasli sísli rusli og þeyþey

Held þetta sé einhvernvegin svona. og ég veit ekkert eftir hvern þetta er.

22 september, 2007 22:14  

Skrifa ummæli

<< Home