miðvikudagur, mars 14, 2007

::: bloggiblogg :::

Það hefur ekki gengið sem skildi að stnda við stóru orðin. Það hefur lítill tími gefist til bloggunar, enda hann af býsna skornum skammti upp á síðkastið, svo ekki sé meira sagt!
Margt hefur drifið á daga mína undanfarið. Ég veit ekki hvort ég á að þreyta ykkur (eða bara þig Palli minn.. þar sem þú ert líklega sá eini sem kíkir á bloggið mitt:-) ).
Frumsýning um síðustu helgi hjá Borgarleikhúsinu / Vesturporti á söngleiknum Ást, sem er algjör snilldar söngleikur, þar sem margir REYNDIR snillingar fara með hlutverk.T.a.m. Kristbjörg Kjeld, Magnús Ólafsson, Skapti Ólafsson (allt á floti), Pétur Einarsson, Hanna Maja, Teddi Júl, Ómar Ragnarsson o.fl.. o.fl.
Strax á eftir stökk ég á árshátíð RÚV þar sem "strákarnir mínir" voru að spila við mikinn fögnuð og heljarmikið stuð viðstaddra.

Svo má ekki gleyma 2 giggum með Stuðmönnum, þar sem mér tókst á seinna gigginu að búa til versta sánd sem ég hef á ævinni vitað! Það er hörmulegt að standa á bak við mixerinn og langa til að láta sig hverfa af staðnum, vegna þess hversu vont sándið er!!! Málið var að húsnæðið sem tónleikarnir vor framdir í, var alveg hræðilegt og hefði ekki verið neitt verra að vera inni í olíutunnu, slíkur var hljómurinn þarna inni! Þar fyrir utan mátti helst ekki hreyfa neina "potta" á mixernum öðru vísi en brakaði....


Eins og gat um í síðasta bloggi, þá er mótorhjóladellan næstum að drepa mig! Þó fékk ég meðal í formi mótorhjóls: Kawasaki GPz 900R árgerð 1990... hörku gripur alveg.. bókstaflega eins og það hafi komið úr verksmiðjunni í gær!

Guðfinna er farinn að vinna 7-15, þannig að maður sér hana allt of lítið, nema þá helst núna þessa daga sem ég er heima vegna flensu... Það er eini ljósi punkturinn við flensuógeðið að geta verið heima með Gúndýnni minni :-)

Við skötuhjú erum að fara til Berlínar 2. í páskum með starfsfólki LR.. það verður nú meira fjörið. Ekki síst vegna þess að stórhljómsveitin Gaffer mun leika þar fyrir dansi!!

Nánast strax eftir það fer ég til Köben með Stuðmönnum og Sálinni.. það gæti líka alveg orðið skemmtilegt!.

Er þetta ekki gott í bili?

Roger.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ja það eru allavega 2 þá sem nenna að lesa þetta blogg! Kíki alltaf annað slagið :)

Kveðja
Gunna litla (Signia)

15 mars, 2007 01:44  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, Til lukku með hjólið.

Ég kem alltaf við á þessari síðu á bloggrúntinum. Kíkir þú hjá mér ?
Hehehe

Láttu þér batna, bið að heilsa Gúndýinni :-)

16 mars, 2007 13:40  
Anonymous Nafnlaus said...

hei maður kvitta nu ekki alltaf,þú ert svo sem ekki sá duglegasti að blogga sko ;-)
Hvernig er með FYC áttu hann ?
kv Lillý.

18 mars, 2007 14:12  
Blogger Zillwester 2k said...

Vei!! fullt af traffík! :-)

Ég hef nú stundum kíkt hjá þér systir góð... það hefur nú ekki verið neitt mikið líflegra hjá þér en mér ;-)

Sorry Lillý, ég á ekkert fænjongkannibolls stöff, enda þóttu mér þeir ekkert sjúklegir sko.. ekki eins og Europe!!! :-D

18 mars, 2007 23:24  
Blogger Helga Hin said...

ég kíki líka stundum
ég átti plötu með fænjongkannibals
ég fílaði líka Europe...
...eitthvað fleira? hmm... neibb.

26 mars, 2007 21:07  

Skrifa ummæli

<< Home