fimmtudagur, janúar 27, 2005

::: meira Stuð :::

ja vúll!!.. afsakið biðina elskuddnar, en nú er biðin á enda!...

margt að frétta... alveg hellingur.. er að flytjast búferlum til Akureyrar, mjög fljótlega.. trommusettið er enn á leiðinni.. %#$"&"#$%.. get alls ekki beðið.. Þó styttir það biðina að ég er að fara til gérmaníu í næstu viku!!!... með Stuðboltunum í stuðboltahljómsveitinni Stuðmenn... vei.. húrra húrraaaaaaaaa!!!!! Það verður nú skondið og skemmtilegt... þó ekki megi búast við kampavíni og styrjuhrognum í morgunamat, eins í síðustu ferð..
Ég er núna í "endurhæfingu" fyrir sunnan... svo ég verði betur undirbúinn við flutningana til akureyrar.. það er nú gott..



Pabbahelgi um næstu.. í morrenn sko.. það verður stuð...

áf vídersen..

Schigurwald.

sunnudagur, janúar 09, 2005

::: sukk og svínarí :::

tjiff.. það er búið að vera ansi gaaaaman í reykjavíkinni í þetta sinnið... svo gaman að orð fá vart líst.. fékk atvinnutilboð sem ég get vart hafnað... sem er líka voðalega gott.. EN.. það á eftir að taka ákvarðanir um allt... líka þetta,, fór á djammið í gærkv.. laugard.kv. hitt voðalega mikið af voðalega skemmtilegu fólki.. og líka annað fólk ekki alveg eins skemmtilegt.. líka frægtfólk... nú,,, .. núna er komið fullt af fullu fólki .. best að djojna.. :-)

áf vídersen..

mánudagur, janúar 03, 2005

::: fallegt :::

Nú sit ég og er að berjast við músik.... fyrir ákveðið tilefni... og nei, það er ekki brúðkaup :-)

Það er svo merkilegt hvað fólk hlustar misjafnlega á tónlist... t.d. hlusta ég aldrei á texta.. EN í þessu brambolti í kvöld þá var einn texti sem fékk mig til að hlusta eftir orðum... Lagið er eftir Magnús Þór Sigmundsson við ljóð Guðmundar Nordal, sem hann (Guðmundur) samdi árið 1917 er hann var við nám í Oxford... Lagið er sem sagt "Ást", sem hún Rassa Grön gerði ódauðlegt fyrir ekki svo löngu...
Hér er allavega ljóðið:


Sólin brennir nóttina,
og nóttin slökkvir dag;
þú ert athvarf mitt fyrir
og eftir sólarlag.

Þú ert yndi mitt áður
og eftir að dagur rís,
svölun í sumarsins eldi
og sólbráð á vetrarins ís.

Svali á sumardögum
og sólskin um vetrarnótt,
þögn í seiðandi solli
og söngur, ef allt er hljótt.

Söngur í þöglum skógum
og þögn í borganna dyn,
þú gafst mér jörðina og grasið
og guð á himnum að vin.

Þú gafst mér skýin og fjöllin
og guð til að styrkja mig.
Eg fann ei, hvað lífið var fagurt,
fyrr en eg elskaði þig.

Eg fæddist til ljóssins og lífsins,
er lærði eg að unna þér,
og ást mín fær ekki fölnað
fyrr en með sjálfum mér.

Ást mín fær aldrei fölnað,
því eilíft líf mér hún gaf.
Aldirnar hrynja sem öldur
um endalaust tímans haf.

Aldir og andartök hrynja
með undursamlegum nið;
það er ekkert í heiminum öllum
nema eilífðin, guð — og við.

Ég var að fatta að þetta er auðvitað trúarlegur texti.... er samt voðalega fallegur....

góðar stundir..

sunnudagur, janúar 02, 2005

::: GLEÐILEGT ÁR :::

þá er enn eitt árið farið af stað...
Það var líka bara svona ansi fínt á Þinghúsinu þ. 29. .. sei sei já.

tók einhver myndir??