mánudagur, febrúar 05, 2007

::: mótorhjólaveiki :::

Það hefur sjálfsagt ekki farið framhjá mörgum að ég er afar illa haldinn af vélhjólasýki "motorhjolus incubus spiritus chronicus".
Helstu einkenni eru m.a. svefnleysi sem getur snúist upp í andvöku heilu og hálfu næturnar, ofdrykkja (til að geta sofnað), endalaust bögg af hálfu sjúklings í garð eigenda vélhjóla.
Helstu áhættuhópar eru þeir sem af völdum vinnu eða annarskonar gleðskapar eru þvingaðir til samneytis við meðlimi Sniglabandið og aðra eins snillinga, sem eru reyndar ekki margir hér á jörðu.
Sjúkdómur þessi kemur sér iðulega fyrir hjá ungum mönnum en getur, ef ekkert að gert, lagst í dvala. Þó er eins líklegt að hann skjóti upp kollinum síðar á æfinni.

Enn hafa engin lyf verið fundin upp við þessari pest og lítur ekki út fyrir að svo verði í bráð.

::: sillhjálmur :::

Vei.. ég er búinn að bæta við / breyta slóð á síðuna mína sem ég ætla nú að reyna að sinna eitthvað.

sillhjalmur.tk